JavaScript is disabled in your web browser or browser is too old to support JavaScript. Today almost all web pages contain JavaScript, a scripting programming language that runs on visitor's web browser. It makes web pages functional for specific purposes and if disabled for some reason, the content or the functionality of the web page can be limited or unavailable.

Rotary Norden er tímarit rótarýfélaga – nýttu þér það sem best!

Opnaðu, lestu og deildu.

Tímarit rótarýfélaga er nú alltaf við höndina í símanum, aðgengilegt á þínu eigin tungumáli og gefur góðum sögum tækifæri til að lifa lengur. Kynntu þér Rotary Norden í nýjum búningi – þar er enn margt áhugavert að finna!

Tiivistelmä

Rotary Norden hefur fengið nýjan heimavöll á rotarynorden.com. Nú getur þú lesið tímaritið í tölvu, spjaldtölvu eða síma, hvar og hvenær sem þér hentar. Framsetningin lagar sig sjálfkrafa að því tæki sem þú notar og tryggir þægilega lestrarupplifun.

Rotary Norden er nú alfarið stafrænt tímarit. Í stað þess að líkja eftir hefðbundnu prentuðu blaði aðlagast efnið skjánum sjálfkrafa. Texti, myndir, myndbönd og valmyndir birtast í hæfilegri stærð og auðvelt er að lesa og skoða efnið án þess að þurfa að stækka skjámyndina eða færa hana til hliðar.

Í síma og spjaldtölvu getur þú flett á milli greina með því að strjúka til vinstri. Í tölvu er einfaldlega smellt á örina til að halda áfram.

Efst í tímaritinu má sjá efnisflokkana og fjölda greina í hverjum þeirra. Þannig færðu fljótt yfirsýn yfir það fjölbreytta lesefni sem er í boði.

Kunnuglegt efni – fjölbreyttari sjónarhorn

Greinar tímaritsins eru áfram aðgengilegar í kunnuglegum efnisflokkum. Í þemagreinum er fjallað um meginviðfangsefni hvers tölublaðs og í Rotariana má finna ýmsan fróðleik og fréttir úr starfi Rotary.

Í landsbundnum fréttaflokkum getur þú fylgst með því sem er að gerast í þínu eigin landi, en jafnframt kynnt þér áhugaverð verkefni og starfsemi rótarýklúbba annars staðar á Norðurlöndum.

Það er nefnilega vel þess virði að líta út fyrir eigin landamæri. Hugsanlega hefur rótarýklúbbur í öðru norrænu landi þróað nýja og árangursríka leið til að efla félagsstarfið, skipuleggja viðburði eða laða að nýja félaga – hugmynd sem gæti einnig nýst þínum klúbbi.

Efni Rotary Norden er aðgengilegt á fimm tungumálum: íslensku, sænsku, norsku, dönsku og finnsku. Þú velur tungumál með því að smella á viðeigandi þjóðfána á vefsíðunni. Fréttir frá Rotary International, sem birtast undir heitinu RI News, eru á ensku.

Viljir þú lesa tímaritið á öðru tungumáli er einnig hægt að nýta sjálfvirka þýðingu í Google Chrome-vafranum með Google Translate.

Þín skoðun skiptir máli

Í nýjum efnisflokki, My Opinion (Mín skoðun), fá rótarýfélagar tækifæri til að láta rödd sína heyrast. Þar geta allir deilt hugleiðingum sínum, reynslu, skoðunum og hugmyndum um starf Rotary.

Hvað veitir þér innblástur í Rotary? Hverju myndir þú vilja breyta? Hvaða málefni ættum við að ræða meira?

Láttu rödd þína heyrast og taktu þátt í að móta umræðuna um framtíð Rotary!

Góðum sögum er vert að deila

Rakstu á áhugaverða grein sem þig langar að fleiri lesi? Nú er auðvelt að deila efni úr Rotary Norden með því að smella á deila hnappinn í lok hverrar greinar. Þú getur til dæmis sent grein í WhatsApp-hóp, með tölvupósti eða deilt henni á samfélagsmiðlum. Þannig geta áhugaverðar sögur náð til nýrra lesenda, einnig utan raða Rotary.

Nú er jafnframt auðveldara að finna greinar úr tímaritinu í gegnum leitarvélar. Góð saga um þjónustuverkefni eða áhugaverð umfjöllun um samfélagsmál getur því vakið athygli og náð til nýrra lesenda löngu eftir að hún birtist fyrst.

Rótarýklúbbar og umdæmi geta einnig birt efni úr Rotary Norden sjálfvirkt á eigin vefsíðum með svokölluðu RSS-streymi. Þannig uppfærist efnið sjálfkrafa þegar nýjar greinar birtast, án þess að þurfa að bæta þeim handvirkt inn á vefsíðuna.

Og já, þú getur enn lesið Rotary Norden á pappír! Hægt er að prenta út bæði heil tölublöð og einstakar greinar. Þannig getur þú tekið áhugaverða grein með á klúbbfund eða komið henni til einhvers sem kýs frekar að lesa prentað efni.

Hafðu Rotary Norden alltaf við höndina

Þú getur sett sérstakt tákn fyrir Rotary Norden á heimaskjá símans eða spjaldtölvunnar. Þá opnarðu tímaritið með einni snertingu, rétt eins og hvert annað smáforrit.

Rotary Norden er svokallað PWA-vefforrit (Progressive Web App). Það þýðir að þú getur notað vefsíðuna á svipaðan hátt og hefðbundið smáforrit án þess að þurfa að sækja sérstakt forrit í forritaverslun.

Android-sími eða spjaldtölva:

Opnaðu rotarynorden.com í Chrome-vafranum. Ýttu á punktana þrjá við hlið veffangastikunnar og veldu „Setja upp forrit“ eða „Bæta við á heimaskjá“, eftir því hvaða valkostur birtist. Fylgdu síðan leiðbeiningunum á skjánum. Heiti valkostanna geta verið mismunandi eftir gerð tækis og útgáfu vafrans.

iPhone eða iPad:

Opnaðu rotarynorden.com í Safari-vafranum. Ýttu á deilitáknið og veldu „Bæta við á heimaskjá“. Ef valkosturinn „Opna sem vefforrit“ birtist skaltu hafa hann virkan. Staðfestu síðan með því að velja „Bæta við“.

Þegar táknið hefur verið sett á heimaskjáinn geturðu opnað Rotary Norden beint þaðan.

Þegar boðið verður upp á tilkynningar geturðu einnig valið að fá skilaboð í tækið þitt þegar nýtt tölublað kemur út. Til þess þarftu að opna tímaritið í gegnum nýja táknið og samþykkja að fá tilkynningar þegar þess er óskað. Athugaðu að það eitt að bæta tákninu á heimaskjáinn virkjar ekki tilkynningar sjálfkrafa.

Prenta greinina