Rótarýklúbbur Rangæinga 60 ára
Fjölbreytt starfsemi Rótarýklúbbs Rangæinga þrátt fyrir háan aldur. Félagsmenn ferskir og hugmyndirnar vantar ekki né frumkvæðið.
Rótarýklúbbur Rangæinga
Tiivistelmä
Stofnfundur Rótarýklúbbs Rangæinga var haldinn í Félagsheimilinu Hvoli 26. febrúar 1966. Fullgildingar hátíð var svo haldin 19. júní sama ár. Upphafsmaður var Ólafur Ólafsson, f.v. kaupfélagsstjóri en hann hafði kynnst rótarýstarfi í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar. Stofnfélagar voru 23. Nú eru félagar 18 og auk tveggja heiðursfélaga. Nær allan þennan tíma hefur sveitarfélagið lagt til fundarsal án endurgjalds í Félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli og þakkar klúbburinn fyrir það af alhug. Ólafur stofnfélagi náði því að verða 100 ára gamall og Rótarýklúbburinn festi kaup á bekk með merki hreyfingarinnar og áletrunar til að minnast frumkvöðulsins. Bekkurinn er við inngang salarins þar sem fundir klúbbsins eru haldnir. Klúbburinn hefur átt tvo umdæmisstjóra; þá Jón R. Hjálmarsson 1977-1978 og Sr. Sváfni Sveinbjarnarson 1998-1999 en umdæmaþing var haldið í Rangárvallasýslu árið 1999 einmitt í Félagsheimilinu Hvoli.
Ýmislegt hefur verið gert í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá stofnun klúbbsins. Klúbburinn hefur staðið fyrir þremur opnum fundum í tilefni afmælisins. Sá fyrsti var 15. janúar s.l., Árni Einarsson, líf- og fornvistafræðingur sagði frá fornminjum á Njáluslóð. Þá kom Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og flutti erindi fyrir foreldra og ungt fólk sem hann nefndi “Verum ástfangin af lífinu”. Þann 30. apríl kom til okkar Snorri Zóphaníasson, jarðfræðingur og sagði frá “Byggð á lifandi landssvæðum.” Þessir fyrirlestrar voru öllum opnir og vöktu athygli á þróttmiklu og öflugu starfi klúbbsins. Klúbburinn hefur í gengnum árin haldið málþing og ráðstefnur um málefni sem eru ofarlega á baugi í héraði og á landinu. Þann 10. apríl var Austurleiðarstofa formlega opnuð í Samgöngusafninu á Skógum. Þar er sögð saga sérleyfisfyrirtækisins Austurleiðar. Klúbburinn hefur unnið að því verkefni undir stjórn Sigurlínar Sveinbjarnardóttur. Rótarýsjóðurinn hefur styrkt verkefnið ásamt með sveitarfélögum á svæðinu.
Í tilefni tímamótanna munu klúbbfélagar og makar gera sér glaðan dag og efna til menningarferðar til Reyjavíkur. Við munum heimsækja Hrafnhildi Ingu Sigurðardóttur, myndlistarkonu, á vinnustofu hennar, þá verður farið á Listasafn Einars Jónssonar og að lokum efnt til hátíðarkvöldverðar á Hótel Holti þar sem við fáum einnig leiðsögn um málverkasafn hótelsins.
Í gegnum árin hefur klúbburinn unnið að skógræktarverkefnum við Kirkjuhól, í Þórsmörk og á Rangárvöllum. Um tíma söfnuðu klúbbfélagar lúpínurótum sem nýttar voru í lúpínuseyði. Á síðasta ári tók klúbburinn þátt í Plokkdeginum og mun væntanlega gera það áfram í samvinnu við sveitarfélög í Rangárvallasýslu. Einnig hefur klúbburinn staðið fyrir málþingum oftast í samvinnu við Landgræðsluna í Gunnarsholti.
Hér má sjá efni málþinganna og hvaða ár þau voru haldin:
1990 Ferðamennska
2005 Orkumál
2007 Málefni fatlaðra Suðurlandi
2011 Eldfjallavá
2013 Landnýting
2015 “Fararheill eða feigðarflan?” verndun náttúru og ferðamannastaða
2016 Náttúruvá í Rangárþingi
2023 Landbúnaður og umhverfi á Suðurlandi
2024 Geðrækt og sjálfsvígsforvarnir
Á þrjátíu ára starfsafmæli klúbbsins var samþykkt að veita framúrskarandi einstaklingi viðurkenningu. Eftirfarandi viðurkenningar hafa verið veittar:
Einstaklingunum: Þórði Tómassyni, Sveini Runólfssyni og Ólafi Ólafssyni.
Fyrirtækjunum: Glerverksmiðjunni Samverki á Hellu, Mosfelli á Hellu og Suðurverki.
Eftirfarandi félagar hafa öðlast Paul Harris viðurkenninguna:
Ólafur Ólafsson, Pálmi Eyjólfsson, Sveinn Runólfsson og Matthías Pétursson.
Klúbbfélagar hafa farið í fræðslu- og skoðunarferðir innanlands sem utan: á Strandir, Snæfellsnes og Flatey, Vestur Skaftafellssýslu. Utanlandsferðir hafa verið farnar til Rómar, St. Pétursborgar, Færeyja, Kaupmannahafnar og Skotlands.
Klúbburinn byggir á gömlum merg en félagarnir eru ferskir og standa fyrir fjölbreyttum og góðum verkefnum sem vekja athygli í samfélaginu sem víðar.
Prenta greinina
