JavaScript is disabled in your web browser or browser is too old to support JavaScript. Today almost all web pages contain JavaScript, a scripting programming language that runs on visitor's web browser. It makes web pages functional for specific purposes and if disabled for some reason, the content or the functionality of the web page can be limited or unavailable.

Rótarýferð um Ísland – ógleymanleg upplifun

Óvænt kynni á ferðalagi geta orðið upphafið að ævilangri vináttu. Það fengu Don Lovejoy, umdæmisstjóri Rótarý í Mið-Englandi, og eiginkona hans, Ewa, að reyna þegar þau heimsóttu Ísland sumarið 2026. Tilviljanakennd kynni við íslenska rótarýfélaga á Taívan urðu til þess að ferð þeirra um Ísland varð að einstakri upplifun þar sem stórbrotin náttúra, einstök gestrisni og ný vináttubönd fléttuðust saman. Ferðasaga þeirra er falleg birtingarmynd þess hvernig alþjóðlegt tengslanet Rótarý sameinar fólk þvert á landamæri og skapar minningar sem lifa lengi.

Don Lovejoy, umdæmisstjóra Rótarý í Mið-Englandi, og eiginkonu hans, Ewu.

Don Lovejoy

Tiivistelmä

Þegar ég hafði nýlega tekið við embætti umdæmisstjóra Rótarý í Mið-Englandi ákvað ég, nánast fyrir tilviljun og að áeggjan sonar míns, að bóka tveggja vikna sumarleyfisferð til Íslands í júlí og ágúst 2026. Ég vissi lítið um landið, keypti mér einfaldan ferðahandbók og hélt síðan til Taívan til að sækja heimsþing Rótarý í Taípei.

Fyrir skemmtilega tilviljun hafði ég bókað fimm daga rútuferð um Taívan og meðal samferðafólksins voru tólf íslenskir rótarýfélagar. Ég sagði þeim frá fyrirhugaðri Íslandsferð og von minni um að hitta rótarýfélaga á ferðalaginu. Ásdís Helga Bjarnadóttir, fyrrverandi umdæmisstjóri, upplýsti mig um að rótarýklúbbarnir væru almennt í sumarleyfi á þessum tíma. Hún lét það þó ekki stöðva sig heldur tók að skipuleggja ferðalagið okkar og koma á sambandi við rótarýfélaga víðs vegar um landið sem við gætum hitt á ferð okkar um Ísland.

Fyrir hennar tilstilli og með ómetanlegri aðstoð íslenskra rótarýfélaga varð Íslandsferðin ein sú eftirminnilegasta sem við höfum farið í. Rótarýfélagar veittu okkur ráðleggingar, leiðsögn og fróðleik, buðu okkur í mat, óku okkur um, hýstu okkur og sköpuðu með okkur minningar og vináttubönd sem munu endast um ókomin ár. Gestrisni þeirra og vilji til að gefa sér tíma fyrir okkur var einstakur.

Frá Reykjavík um Vesturland og Norðurland

Við hófum ferðina með fjögurra daga dvöl í Reykjavík og höfðum bókað rútuferðir um Gullna hringinn og Snæfellsnes. Báðar ferðirnar voru frábærar. Við sáum hið tignarlega Kirkjufell og Kirkjufellsfoss, Snæfellsjökulsþjóðgarð, svartar sandfjörur, kirkjur, klettadranga, stórbrotna kletta og víðáttumikil hraun. Við sáum einnig seli, Kerið, fossa, goshveri og íslenska hesta.

Einn daginn skoðuðum við Reykjavík fótgangandi, röltum um gamla bæinn og hafnarsvæðið og dáðumst að Hallgrímskirkju með sinni framúrstefnulegu byggingarlist. Við fórum einnig í FlyOver Iceland, sem okkur hafði verið sérstaklega mælt með og reyndist frábær upplifun.

Á fimmta degi sóttum við bílaleigubílinn okkar og héldum norður á bóginn. Fyrsti viðkomustaðurinn var Hvanneyri, heimabyggð Ásdísar Helgu. Þar tók hún á móti okkur og sýndi okkur þorpið, fallegt fjallaumhverfið og hinn þekkta Landbúnaðarháskóla Íslands.

Þaðan héldum við til Blönduóss, þar sem við gistum eina nótt, áður en ferðinni var haldið áfram til Akureyrar. Við skoðuðum bæinn og enduðum daginn á dýrindis ís.

Morguninn eftir lögðum við snemma af stað til Húsavíkur til að fara í hvalaskoðun. Þar urðum við þeirrar gæfu aðnjótandi að sjá bæði hnúfubak og höfrungahóp.

Einstakar móttökur í Kelduhverfi

Eftir þessa stórkostlegu upplifun á sjónum ókum við í Kelduhverfi til að hitta Soffíu Gísladóttur, stjórnarmann Rotary International og fyrrverandi umdæmisstjóra, og eiginmann hennar, Munda (Guðmund Baldvin GUðmundsson), gjaldkera íslenska rótarýumdæmisins.

Þau tóku höfðinglega á móti okkur og buðu upp á dýrindis heimilislegan hádegisverð. Að máltíð lokinni fóru þau með okkur í skoðunarferð um Ásbyrgi, hina stórbrotnu skeifulaga klettaborg, og um Vatnajökulsþjóðgarð þar sem við dáðumst að tilkomumiklu gljúfrunum.

Við héldum síðan áfram ferðinni og gistum við Mývatn. Útsýnið frá gististaðnum var ævintýralegt og minnti helst á landslag á tunglinu.

Morguninn eftir ókum við um Mývatnssveit og gáfum okkur góðan tíma til að skoða sérstæðar klettamyndanir, hraunmyndanir við vatnið og jarðhitasvæði.

Hlýjar móttökur á Austurlandi

Frá Mývatni lá leiðin til Egilsstaða og þaðan í Hallormsstað, þar sem við dvöldum í tvær nætur.

Fyrra kvöldið hittum við Skúla Björnsson, forseta Rótarýklúbbs Héraðsbúa, og rótarýfélagann Hlín Pétursdóttur Behrens. Þau tóku okkur einstaklega vel og buðust til að sýna okkur áhugaverða staði á svæðinu daginn eftir.

Hlín fór með okkur yfir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar, þar sem við nutum útsýnis yfir hinn fallega fjörð og litrík hús bæjarins. Eftir léttan hádegisverð heimsóttum við föður hennar, Pétur Behrens, listamann sem bæði teiknar og ræktar glæsilega íslenska hesta.

Síðdegis og fram á kvöld tóku Skúli og eiginkona hans, Þórunn Hálfdánardóttir, við leiðsögninni. Þau fóru með okkur vítt og breitt um svæðið og sýndu okkur meðal annars fjall, kirkju, gestastofu og fjölmarga aðra áhugaverða staði.

Samverustundirnar með þeim öllum voru okkur einstaklega ánægjulegar og gerðu dvölina á Austurlandi ógleymanlega.

Náttúruperlur á Suðurlandi

Næstu daga ókum við meðfram suðurströnd Íslands og nutum stórkostlegrar náttúrufegurðar.

Á leiðinni blöstu við okkur jöklar, fossar, svartar sandfjörur, fjöll og þjóðgarðar. Við sáum heillandi lunda, heimsóttum hið einstaka steinasafn Petru og dáðumst að ísjökum og síbreytilegu jökullandslagi.

Hvert sem litið var beið okkar ný náttúruperla, og fossarnir virtust verða fegurri og tilkomumeiri með hverjum áfanganum.

Gestrisni og vinátta í Reykjavík

Að lokinni hringferðinni snerum við aftur til Reykjavíkur, þar sem við áttum fjóra frábæra daga í félagsskap Önnu Stefánsdóttur, fyrrverandi umdæmisstjóra.

Anna tók okkur opnum örmum, eldaði fyrir okkur íslenskan mat og fór með okkur í Bláa lónið. Hún sýndi okkur einnig þau miklu ummerki sem eldgosin við Grindavík hafa skilið eftir sig, meðal annars víðáttumikil svört hraun, auk fjölmargra annarra áhugaverðra staða.

Hjálpsemi hennar, hlýja og umhyggja voru einstök. Hún hefði vart getað gert meira til að gera dvöl okkar ánægjulegri.

Síðasta kvöldið okkar á Íslandi vorum við gestir Elísabetar S. Ólafsdóttur, núverandi umdæmisstjóra Rótarý á Íslandi.

Hún bauð okkur til heimilis síns og framreiddi glæsilega íslenska veislumáltíð ásamt fjölbreyttum veigum. Kvöldið var einstaklega ánægjulegt og varð sannarlega viðeigandi lokapunktur á ógleymanlegri Íslandsferð.

Minningar og vinátta sem lifa áfram

Við munum ávallt minnast stórbrotinnar náttúru Íslands, fisksins og fransknanna, tæra vatnsins, hreina loftsins og heillandi lundanna.

En umfram allt munum við minnast þeirrar einstöku hlýju, gestrisni og vináttu sem íslenskir rótarýfélagar og fjölskyldur þeirra sýndu okkur.

Það var fólkið sem gerði þessa ferð svo sérstaka og skapaði minningar sem við munum varðveita um ókomin ár.

Prenta greinina