JavaScript is disabled in your web browser or browser is too old to support JavaScript. Today almost all web pages contain JavaScript, a scripting programming language that runs on visitor's web browser. It makes web pages functional for specific purposes and if disabled for some reason, the content or the functionality of the web page can be limited or unavailable.

Klúbbur án endurnýjunar á sér enga framtíð

Yinka Babalola um framtíð Rótarý, nýjar kynslóðir og kraftinn í mannlegum tengslum.

Ásdís Helga Bjarnadóttir

Ásdís Helga Bjarnadóttir

Tiivistelmä

Það er ekki á hverjum degi sem fréttaritara Rotary Norden gefst tækifæri til að eiga löng og óformleg samtöl við heimsforseta Rótarý. Það tækifæri gafst í Íslandsheimsókn Yinka Babalola þegar ég slóst í för með honum og nokkrum íslenskum Rótarýfélögum að Hellisheiðarvirkjun, Geysi og Þingvöllum. Á milli áfangastaða ræddum við framtíð hreyfingarinnar, áskoranir og þau tækifæri sem hann sér fyrir Rótarý á Norðurlöndum.

Ég spurði Yinka hvaða skilaboð hann vildi senda öllum norrænum Rótarýfélögum.

Svarið kom án umhugsunar:

„Sköpum varanleg áhrif.“

Þetta er kjarninn í forsetaboðskap hans, Create Lasting Impact. Hann útskýrði að varanleg áhrif þyrftu að birtast á þremur sviðum: í heiminum, í nærsamfélaginu og í okkur sjálfum – klúbbunum og umdæmunum.

„Öll samfélög glíma við einhverjar áskoranir,“ sagði hann og lagði áherslu á að Rótarýfélagar þyrftu að spyrja sig hvað samfélagið þeirra raunverulega þarfnaðist. Ekki nægði að vinna góð verkefni; markmiðið væri að finna lausnir sem hefðu áhrif til framtíðar.

Yinkas speech

Klúbbur án endurnýjunar á sér enga framtíð

En hvernig sköpum við varanleg áhrif innan Rótarý sjálfs?

Þegar samtalið barst að klúbbum þar sem meðalaldurinn er jafnvel 75 ár voru skilaboð Yinka afdráttarlaus. Klúbbur sem fær ekki nýja félaga til liðs við sig stefnir að lokum í að hverfa.

Hann telur þó ekki nóg að fjölga félögum. Rótarý þurfi fólk með nýja hæfni, þekkingu, tengsl og hugmyndir, fólk sem geti orðið leiðtogar framtíðarinnar.

„Nýsköpun er eina leiðin til að lifa af,“ sagði hann.

En nýsköpun felst ekki aðeins í nýrri tækni eða breyttum fundartímum. Hún felst líka í því að treysta nýju fólki til að móta starfið.

Yinka sagði frá ungri Rotaract-konu sem fékk ekki inngöngu í klúbb föður síns vegna þess að þar voru konur ekki teknar inn. Hún stofnaði þá nýjan klúbb ásamt öðrum. Þegar Yinka síðar hvatti hana til að stefna að embætti umdæmisstjóra voru skilaboð hans einföld:

„Þú getur það.“

Hún varð síðar umdæmisstjóri.

Þessi saga sýnir að framtíð Rótarý þarf ekki alltaf að verða til innan gamalla klúbba. Eldri félagar geta nýtt reynslu sína og tengsl til að styðja við stofnun nýrra klúbba, jafnvel þótt þeir starfi með allt öðrum hætti.

Fólkið sem við höfum þegar náð til

Yinka benti á að við þyrftum ekki alltaf að leita langt að nýjum Rótarýfélögum. Börn og barnabörn núverandi félaga væru augljós hópur. Hann rifjaði upp hvernig systir hans brást við þegar hann spurði hana loks hvenær hún ætlaði að ganga í Rótarý:

„Loksins ætlar þú að bjóða mér!“

En tækifærin eru mun víðar.

Á hverju ári gefur Rótarý ungu fólki tækifæri til skiptináms, styður við Rotaract og fjárfestir í menntun friðarfulltrúa, Rotary Peace Fellows. Þetta fólk hefur þegar kynnst gildum hreyfingarinnar og byggt upp alþjóðleg tengsl.

Hvað gerist svo?

„Þetta fólk býr yfir mikilli hæfni. Við höfum menntað það. Það þekkir viðfangsefnin og hefur hugmyndir um lausnir,“ sagði Yinka um friðarfulltrúana.

Síðan spurði hann:

„Hvar eru friðarfulltrúarnir sem þið styrktuð síðustu tíu árin?“

Hann hafði hvatt friðarfulltrúa í Uppsölum til að stofna eigin Rótarýklúbba. Sumir höfðu ekki einu sinni gert sér grein fyrir að sá möguleiki væri fyrir hendi.

Sama spurning á við um fyrrverandi skiptinema. Höldum við tengslunum við þá? Bjóðum við þeim að verða hluti af hreyfingunni síðar á lífsleiðinni?

Kannski erum við dugleg að bjóða fólki inn í verkefni Rótarý en gleymum stundum að bjóða því inn í Rótarý sjálft.

Getur Rótarý verið svar við einmanaleika?

Eitt áhugaverðasta samtalið spratt af upplifun Yinka í íslenskri sundlaug.

Hann hafði tekið eftir því hvernig fólk kom saman, heilsaðist með nafni, synti og settist síðan í heita pottinn eða yfir kaffibolla. Fólk gat komið eitt en samt fundið félagsskap og tilheyrt samfélagi.

Þetta tengdi hann við einmanaleika og félagslega einangrun – áskoranir sem þekkjast víða á Norðurlöndum.

„Tengsl ein og sér eru kannski ekki það sem laðar fólk að, en tengsl sem hafa tilgang geta gert það,“ sagði hann.

Þessi hugsun breytir sjónarhorninu. Við spyrjum oft hvað nýir félagar geti gert fyrir Rótarý. En hvað getur Rótarý gert fyrir þá?

Rótarý getur verið vettvangur þar sem fólk eignast vini, finnur tilgang, nýtir hæfileika sína og verður hluti af samfélagi. Yinka benti á að ungt fagfólk þyrfti ekki endilega fjárhagslegan stuðning frá Rótarý. Það þyrfti kannski fremur tengslanet, vettvang fyrir hugmyndir sínar og tækifæri til að láta gott af sér leiða.

Þarna mætast tvær mikilvægar þarfir: Rótarý þarfnast nýrra félaga og samfélagið þarfnast mannlegra tengsla.

Þorum við að opna dyrnar?

Áskorun Yinka til norrænna Rótarýfélaga er því ekki aðeins að fjölga félögum. Hún er að endurskoða hvernig við tökum á móti fólki, hvaða tækifæri við veitum því og hvort við séum tilbúin að leyfa nýrri kynslóð að breyta því sem við höfum sjálf byggt upp.

Við eigum að varðveita grunngildi Rótarý – en ekki endilega allar venjurnar.

Við höfum reynsluna, alþjóðlega tengslanetið og ótal einstaklinga sem þegar þekkja hreyfinguna. Við höfum líka samfélög sem þurfa á vináttu, samvinnu og varanlegum lausnum að halda.

Kannski er stærsta tækifæri Rótarý ekki aðeins að finna fleiri félaga heldur að skapa samfélag sem fleiri vilja tilheyra.

Því framtíð Rótarý ræðst ekki eingöngu af því hversu mörgum við bjóðum inn – heldur líka af því hversu mikið rými við gefum þeim til að hafa áhrif og skapa varanleg áhrif. Þetta snýst ekki bara um Rótarý í dag, heldu hvort Rótarý verði enn öflug hreyfing á morgun.

Að lokum ávarp Yinka Babalola

Prenta greinina