Fyrsta íslenska konan í stjórn Rotary International
Það sem hófst með inngöngu í Rótarýklúbb Akureyrar árið 2012 hefur leitt Soffíu Gísladóttur alla leið í stjórn Rotary International. Hún er fyrsta íslenska konan í stjórninni og þriðji Íslendingurinn frá upphafi. Saga hennar sýnir hvernig vinátta, frumkvæði og þjónustuhugsjón geta opnað óvæntar dyr.
Ásdís Helga Bjarnadóttir, Mike Thorn, Soffía Gísladóttir
Tiivistelmä
„Frá fyrstu tíð fann ég hversu mikilvægur vettvangur Rótarý er, með mikilli fræðslu, sterku tengslaneti, bæði innlendu og erlendu sem og góðri vináttu,“ segir Soffía. Hún varð ritari klúbbsins 2013–2014 og forseti 2017–2018. Áhugi hennar á að leggja meira af mörkum leiddi hana síðan í starf umdæmisstjóra 2020–2021, á miðjum Covid-tímanum.
„Þá þurfti að hugsa út fyrir boxið á hverjum degi, vera sveigjanleg, lausnarmiðuð og hafa frumkvæði að nýstárlegu starfi umdæmisins og klúbbanna.“
Að skapa fólki tækifæri
Soffía hefur lengi starfað að velferðar- og atvinnumálum, meðal annars með fólki sem þarf stuðning til þátttöku á vinnumarkaði. Endurhæfingar- og starfsþjálfunarverkefni sem hún þróaði á Norðurlandi vakti athygli erlendis og henni var boðið að kynna það á ráðstefnu í London árið 2011. Sú trú að fólk geti blómstrað fái það tækifæri tengir starfsferil hennar við hugsjónir Rótarý.
Haustið 2022 stýrði hún undirbúningi Rotary Action Summit í Reykjavík, þar sem um 500 rótarýfélagar komu saman. Í kjölfarið tók hún við hlutverki Assistant Rotary Membership Coordinator fyrir svæði 17 og 18. Þegar hún var hvött til að gefa kost á sér í stjórn RI ákvað hún að láta slag standa og var valin úr hópi fimm frambjóðenda.
Svefnlaus vegna strætóferðar!
Valferlið átti líka sína spaugilegu hlið. Fyrir viðtal hjá valnefnd í Noregi gisti Soffía hjá vinkonu á sveitabæ skammt frá Osló. Kvöldið áður reyndi vinkonan að útskýra strætóleiðina á fundarstað. Soffía þekkti ekkert til og óttaðist að rata ekki eða mæta of seint. Hún svaf því varla um nóttina – ekki vegna viðtalsins, heldur strætóferðarinnar! Um morguninn bauð vinkonan henni far. Viðtalið gekk vel og Soffía hlaut embættið.
„Þetta kennir manni að gera ekki úlfalda úr mýflugu,“ segir hún.
Áhrif langt út fyrir Ísland
Soffía tók sæti í stjórn RI 1. júlí 2026 til tveggja ára. Þar sitja 17 kjörnir stjórnarmenn auk forseta og verðandi forseta. Stjórnin mótar stefnu alþjóðahreyfingarinnar og tekur ákvarðanir um starfsemi hennar.
Soffía er varaformaður Programs (Participant Experience) Committee, sem fjallar meðal annars um félagaþróun, fræðslu og upplifun þátttakenda. Hún kemur einnig að fræðslu leiðtoga í Joint Learning Committee. Þessi mál snerta alla klúbba: Hvernig tökum við á móti nýjum félögum? Hvernig gerum við starfið áhugavert fyrir ólíkar kynslóðir og tryggjum að fólk finni að það geti haft áhrif?
Stjórnarsetan er umfangsmikið sjálfboðastarf með ferðalögum, fundum og samstarfi þvert á landamæri. Soffía leggur áherslu á stuðning eiginmanns síns, Guðmundar Baldvins Guðmundssonar, og öflugs teymis á svæðum 17 og 18 sem sinnir meðal annars félagaþróun, Rótarýsjóðnum og baráttunni gegn lömunarveiki.
„Ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk, með auðmýkt og metnaði,“ segir hún og nefnir markmið Rótarý um frið, heilsu, menntun og betri lífsskilyrði.
Ekki þurfa allir að stefna í stjórn Rotary International. En hver rótarýfélagi getur tekið frumkvæði, eignast nýja vini og látið gott af sér leiða. Hver veit nema næsta stóra ævintýri hefjist með þátttöku í næsta klúbbfundi eða með því að stofna nýjan Rótarýklúbb?
Prenta greinina
